eitt stutt
Úff hvað er langt síðan ég bloggaði síðast… hef svosem ekkert mikið að segja.. og greinilega ekki þið heldur…
Stóra systir mín, hún Ragna á von á barni í September 2008… Mona vinkona sagði þetta best og ég verð að vera sammála henni:
“Heimurinn þarf líka á fleiri afkvæmum Rögnu og Egils að halda.. þau eru svo vel heppnuð og yndisleg”
--Já það verður sko fjör þegar það fjölgar hjá þeim.. ennþá meira fjör en venjulega…
Já bara svo ég telji þetta upp þá er Erla líka ólétt, af stelpu… Þóra Margrét líka af stelpu… Rakel Tanja á að eiga í apríl… Svo eru þrjú systkini Ingvars sem eiga von á börnum.. eitt minnir mig í Júlí og tvö í September þannig að þetta ár verður rosalegt fyrir budduna okkar Ingvars… en æðislegt í alla aðra staði…
Svo eiga 5 vinnufélagar mínir einnig von á börnum… 3 af strákunum á minni skrifstofu…!!
What’s going on?!
En að öðru.. ekki jafn skemmtilegu…
Amma Lilla dó á afmælisdaginn sinn 15 mars… þá var hún 87 ára… hún hefur ákveðið að halda uppá afmælið sitt með einhverjum öðrum en okkur… kanski bara afa og mömmu J
Kistulagningin var á miðvikudaginn og jarðarförin verður í dag kl 3. Við stelpu barnabörnin verðum kistuberar.. Ég kvíði því pínulítið, en er stolt af því að fá að gera þetta…
Jæja.. verð að fara að halda áfram að vinna… en ætla að enda á þessu spakmæli sem ég fékk sent í pósti áðan…
- Ein af frábæru umbunum lífsins er að ef þú í einlægni hjálpar öðrum, þá hjálpar þú sjálfum þér í leiðinni. –En vá ég hélt að það væru mörg börn að fæðast í kringum mig.. ég held að þu toppir mig :)
Hafðu það gott!!
Við vorum nú ekki svo slæmir kistuberar þó að ég segi sjálf frá en Guð minn góður hvað mig kveið fyrir því..
En já vona að þú farir nú að koma með annað blogg það er soldið langt síðan að jarðaförin hennar Ömmu var að mínu mati!
Vona að þið hafið það annars gott..
Maður verður bara að trúa því að það sem drepur mann ekki styrkir mann. Það hlýtur að búa e-ð að baki þessum áföllum þínum, ég trúi ekki öðru.
Ég samhryggist þér innilega :(
Þú ert samt svo sterk og dugleg ;) - aftur STÓRT stubbaKNÚS á þig ;)
En að þessu góða og skemmtilega, innilega til hamingju með öll þessi bumbukríli - það er bara gaman að því ;)
Við verðum svo að fara að ákveða hitting... spurning hvort einhver önnur fari að ríða á vaðið í staðinn fyrir að bíða eftir Dagnýju :Þ
Rakel Tanja verður að bíða þangað til krílið er fætt með sinn hitting, því við VERÐUM að sjá ;)
Hlakka til að sjá þig annað kvöld:D:D
Freyja... ég skal reyna ađ tala viđ ţessa kalla sem ég bý međ... ég skal reyna ađ skipuleggja eitthvađ svona kvöld útfrá einhverjum fótboltaleikjum svo ég geti bara sent ţá á barinn međan viđ hittumst ;) hehehe
