Aðalvalmynd

Nóvemberið okkar!!! :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

STRÁKSI

25. júní 2008 klukkan 10:03
Flestir höfðu rétt fyrir sér...
IT'S A BOY! :)

Hvort kynið geng ég með?

29. apríl 2008
Strák ( 50% / 11 atkvæði )
Stelpu ( 36% / 8 atkvæði )
Get ekki ákveðið mig ( 14% / 3 atkvæði )

blogg

13. júní 2008 klukkan 09:14

nenni ekki að blogga á tveimur stöðum....
blogga um daglegt líf + bumbuna á
www.barnaland.is/barn/72478 ef þið viljið fylgjast með þá bara fáiði lykilorðið þar....

hlakka svo til!!!

08. maí 2008 klukkan 10:23
Ég hlakka svo til á laugardaginn... þá sé ég loksins skvísurnar mínar úr enskunni.... þær eru búnar að vera í prófum og algjörlega LOST hahaha... loksins eru þær búnar og þá fæ ég þær aftur!! :)
-nema Unni sem asnaðist til þess að ákveða að fara til Spánar... Unnur.. it's bad for your....... manstu? híhíhí

jæja.. hef ekkert að segja.. heyrðum sætann hjartslátt í fyrradag og krílið var í svo miklu stuði að við heyrðum það meira að segja sparka í tækið.. híhíhí! :)

chiao

baby land :)

29. apríl 2008 klukkan 20:03

hæ gott fólk og takk æðislega fyrir commentin! :) loksins vita allir! :) engin leyndarmál lengur, nema hjá krílinu sem heldur kyninu leyndu í 6 mánuði í viðbót (Ingvar vill ekki vita)

ég bjó til síðu (eða ég gerði reyndar ekkert nema að borga aðganginn, Kristjana gerði síðuna, enda hefði ég aldrei getað gert neitt svona flott) og hér er slóðin
http://www.barnaland.is/barn/72478/
hún er læst þannig að ef þið viljið lykilorðið getið þið sent mér e-mail... thelma1909@hotmail.com
þið þurfið sko ekki að vera feimin með að biðja um lykilorðið! :) bara gaman að fólk fylgist með.... bara ekki creeps! ;)

Fleira verður ekki í bili... 2 blogg á 2 dögum er too much work! :) + svo eitt blogg á BL síðunni...
:)

kv. Thelma

p.s. Allir að taka þátt í könnuninni hér til hægri :)

MY EGGO IS PREGGO :) :)

27. apríl 2008 klukkan 19:24
jæja... ætli það sé ekki ok að skella þessu hingað inn núna fyrir þá sem ekki voru búin að frétta... og líka fyrir ykkur hin ;)
Ég og Ingvar eigum von á litlu nóvemberi 8 nóvember!! :)

12vikna_02.jpg picture by icethelma

nýtt...

08. apríl 2008 klukkan 11:19
Stelpur... ég hef eiginlega bara ekkert að segja... svo lítið merkilegt að gerast þessa dagana...

Fór í partý hjá Fjólu og vinkonum hennar á laugardaginn... þar var svaka gaman... allt fljótandi í áfengi og svo var dótakynning frá Adam og Evu ;) Ég fór heim um miðnætti og fór uppí Breiðholt að sækja Ingvar... sem tók tvo klukkutíma þar sem hann var orðinn alveg sótölvaður... yndið mitt ;) það var alveg ógeðslega gaman hjá honum og maðurinn reytti af sér brandarana hægri vinstri... hahaha

D
agurinn eftir var ekki eins skemmtilegur hjá mínum manni... hann var alveg SÁRkvalinn af þynnku og gat varla hreyft sig allan daginn... honum var ekki vorkennt allt of mikið þar sem að deginum áður var ég blá edrú og vaknaði alveg hress og kát og til í allt!


Í
 kvöld verður svo kaffihúsahittingur með pjöllunum mínum... Ætlum að fara á vegamót... hlakka til þar sem það er svoldið langt síðan við hittumst og spjölluðum saman síðast (fyrir utan laugardaginn)

Það fer að styttast í ferðina okkar á Skagaströnd... förum 23 apríl.. þ.e. eftir 2 vikur... ætlum að taka Eydísi og Einar með okkur þannig að þetta verður alveg pottþétt svakalegt stuð!
J Það verður líka gaman að fara og hitta alla.. höfum ekki farið á Skagaströnd síðan milli jóla og nýjárs!!  Ekki nógu gott!!

Jamm.. eins og ég sagði.. hef ekkert merkilegt að segja...

Ég er reyndar að fara á badminton mót hjá golfklúbbnum okkar Guttormi Tudda... það verður á laugardaginn og ég er viss um að ég á eftir að tapa með STÆL! Og ég er stolt af því... en það verður alltaf að vera einhver svona LÚSER... ég er alveg sátt við það hlutverk ;)
Ingvar kemst ekki á mótið og er mjög fúll yfir því... þetta var eitt af því fáa sem hann ætlaði að taka þátt í... og vinna! 
 

Ok... ætla að enda þetta með spakmæli sem ég fékk sent í e-maili í dag...

Ef þú segir alltaf sannleikann, þarftu ekki að muna hvað þú segir

eitt stutt

28. mars 2008 klukkan 09:32
 

Úff hvað er langt síðan ég bloggaði síðast… hef svosem ekkert mikið að segja.. og greinilega ekki þið heldur…

Stóra systir mín, hún Ragna á von á barni í September 2008…  Mona vinkona sagði þetta best og ég verð að vera sammála henni:
 “Heimurinn þarf líka á fleiri afkvæmum Rögnu og Egils að halda.. þau eru svo vel heppnuð og yndisleg”

--Já það verður sko fjör þegar það fjölgar hjá þeim.. ennþá meira fjör en venjulega…

 

Já bara svo ég telji þetta upp þá er Erla líka ólétt, af stelpu… Þóra Margrét líka af stelpu… Rakel Tanja á að eiga í apríl… Svo eru þrjú systkini Ingvars sem eiga von á börnum.. eitt minnir mig í Júlí og tvö í September þannig að þetta ár verður rosalegt fyrir budduna okkar Ingvars… en æðislegt í alla aðra staði…

Svo eiga 5 vinnufélagar mínir einnig von á börnum… 3 af strákunum á minni skrifstofu…!!

What’s going on?!

 

En að öðru.. ekki jafn skemmtilegu…

Amma Lilla dó á afmælisdaginn sinn 15 mars… þá var hún 87 ára… hún hefur ákveðið að halda uppá afmælið sitt með einhverjum öðrum en okkur… kanski bara afa og mömmu J

Kistulagningin var á miðvikudaginn og jarðarförin verður í dag kl 3. Við stelpu barnabörnin verðum kistuberar..  Ég kvíði því pínulítið, en er stolt af því að fá að gera þetta…

 

Jæja.. verð að fara að halda áfram að vinna… en ætla að enda á þessu spakmæli sem ég fékk sent í pósti áðan…

 - Ein af frábæru umbunum lífsins er að ef þú í einlægni hjálpar öðrum, þá hjálpar þú  sjálfum þér í leiðinni. –

Ég vil SUMAR!!!

13. mars 2008 klukkan 10:16
Hmmm.. Það er svo langt síðan ég skrifaði síðast að ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja.

Erla eggjakaka var að komast að því að hún er ólétt af lítilli prinsessu og vil ég óska henni innilega til hamingju með það....  hún og bjarki baunabyssa (eins og hún kallar hann) voru líka að flytja í rosa flott raðhús í Breiðholtinu... með 5 svefnherbergjum... ojojoj hvað ég er abbó (á góðan hátt) samgleðst ykkur ekkert smá!! J

Ég og Ingvar dönsum ennþá eins og mestu snillingar í heimi.. skrópuðum reyndar á mánudaginn.. en við bætum þetta upp næst... J

Svo erum við að fara í fermingu á sunnudaginn... hlakka til að fá kökur.... nammi namm!!! J

Mér og Ingvari gengur alveg rosalega vel að safna fyrir íbúð... erum komin upp í 1.834.000 J vonandi verðum við komin í okkar eigin íbúð í lok ársins 2008. Við erum reyndar búin að finna draumaíbúðina... hún var á sölu um daginn og var svo tekin af sölu... konan sagðist ætla að setja hana aftur á sölu í október.... JJJJ hún er í Háagerði 23.... geðveikt flott!  -við ætlum að ná henni!!!

Ég og Ingvar erum að fara á Skagaströnd í lok apríl með Eydísi og Einar með okkur... okkur hlakkar ekkert smá mikið til... tíminn er sko ekki að líða nógu hratt... :/ oooh mér finnst svo gaman þar....

Svo er Mallory vinkona frá Bandaríkjunum að hugsa sér að koma  til landsins í sumar.... jeij!! Ég og Ingvar vorum að spá í að taka hana með okkur hringinn í kringum landið og enda svo hjá fjölskyldu Ingvars.... J  Ég get ekki beðið... hún kom síðast 2005.... ég er viss um að þetta sumar verður æðislegt!!

OHHHH afhverju er ekki sumar núna?!?!?!

einn brandari að lokum:

 

Kona kom með kornabarn til læknis í skoðun.
"Hann er svolítið of léttur",sagði læknirinn, er hann á pela eða brjósti?
"Brjósti" sagði konan.
"Láttu mig sjá brjóstin", sagði læknirinn.
Hún fór úr að ofan og hann strauk og hnoðaði brjóstin á henni góða stund, og sagði svo:
"Það er engin mjólk í brjóstunum á þér"
"Ég veit, sagði konan, ég er amma hans, en ég er fegin að ég skyldi koma"

Ýmsar góðar spurningar!

03. mars 2008 klukkan 11:20

*Hvað eru fiðrildi með í maganum þegar þau eru ástfangin?
*Hvers vegna eru hermenn í borgarastyrjöld?
*Af hverju er síðasti söludagur á sýrðum rjóma?
*Hvað telja kindur þegar þær geta ekki sofnað?
*Eru haldin kaffihlé í teverksmiðjum?
*Af hverju kallast maður sem talar dónalega við konu karlrembusvín en kona sem talar dónalega við karlmenn fær borgað á mínútuna?
*Hver er hraði myrkursins?
*Af hverju er framleitt Whiskas með kjúkling, Whiskas með nautakjöti, Whiskas með fiski en ekki Whiskas með mús?
*Er fullur tölvudiskur þyngri en tómur?
*Ef geðklofi hótar að fremja sjálfsmorð, kallast það þá gíslataka?
*Af hverju svarar símsvarinn aldrei þegar hann er spurður?
*Ef maísolía er gerð úr maís og olívuolía úr olívum, hvernig er því háttað með barnaolíuna?
*Ef sund er gott fyrir handleggi og fætur, af hverju eru fiskar með hvorugt?
*Af hverju eru seldar sígarettur á bensínstöðvum þegar það er bannað að reykja þar?

Boobs

28. febrúar 2008 klukkan 15:21

Já, það eru kostir og gallar við að vera með lítil brjóst eins og ég... en ég er sátt við mín...
en þetta ljóð er flott og fyndið... og rétt!!

Oh I wish I had boobs that would wobble
Mine just stay still in one place
In the breast hall of fame
You won't see my name
For my boobs there would be a disgrace


Sure boobs of my size have their merit
They're easy to fit with a bra
And when I go for a dip
You won't see one slip…out
They stay put…just where they are


And I'm not one to seek much attention
So you won't find me strutting about
In a boob tube that's trying
by gravity defying
to leave no room, not even for doubt


But I sure envy big breasted women
I've seen them at parties you know
With all confidence thrust
In their mighty big bust
Entrancing the men as they go


Though I've heard from a big bosomed buddy
That it's not all it's cracked up to be
She says in frustration
"Try to hold conversation
When there's only two things a guy sees"


Now if I paid a few grand to enlarge them
To, say thirty-six b or c
Would they still look so natural
And could I class them as collateral
Sorta like home improvements on me


Now I've not taken this boob thing just lightly
I've done quite a bit of research
As I try to keep abreast
In my mammary quest
I've found there's a bit to be learned


There's questions that need to be answered
Like cleavage, how wide and how deep
I can have nipples bigger
But somehow I figured
That could poke Sweetie's eye in his sleep


Oh, I wish I had boobs that were awesome
I'd buy a bright red bathing suit
On the beach I would run
In slow motion for fun
To show off my best attribute


Now don't think I'd just get them for vanity
There's much I'd aspire to do
I could feed many babies
When I was lactating
And for convenience, I could offer drive-thru


In a t-shirt I'd test air conditioning
They could 'see' if they had it too low
And if I stood outside
My breasts pumped up with pride
Police'd use me to stop traffic flow



Well you can see I've a lot to consider
For the big plunge, I need some more time
So I'll keep you updated
But for now they're just fated
To stay as they are for a while


And there's my sweetie who totally accepts me
For he loves each and every little…bit
He says "stay as you are
You're the most beautiful by far"
As he gazes into my eyes…not my tits


jæja... farin í klippingu og litun...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Thelma
  • Atvinna: Þjónustufulltrúi í Miðlun hjá MP Fjárfestingarbanka
  • Hjúskaparstaða: Á pikk-föstu
  • Um mig: Fjörkálfur með meiru, hef gaman að... hmmm eiginlega öllu, leiðist mjög sjaldan. Er oftast alveg ófeimin, sérstaklega þegar búið er að hella í mig nokkrum áfengum drykkjum. Finnst svo gaman að kynnast nýju fólki... the more the merrier segi ég bara. :)